Stjórnmál: Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, skrifaði:
„Pólitík sveiflast oft eins og pendúll. Ýmsar stefnur njóta tímabundinnar hylli en ganga svo rækilega fram af fólki þannig að það verður fljótt afhuga. Það virðist vera að gerast með Miðflokkinn um þessar mundir. Eftir því sem hann bætir við gremju gagnvart fleiri minnihlutahópum eða sýnir skýrar á spilin um raunverulegt innihaldsleysi sitt þá fækkar þeim sem segjast styðja flokkinn. Það er sérstaklega athyglisvert að mýtan um að allir ungir karlar landsins séu að flykkjast í Miðflokk er ekkert annað en það, mýta. Kannanir sýna svart á hvítu að jafnaðarmennska, umburðarlyndi og samhyggð eru miklu vinsælli hjá framtíð þjóðarinnar en gremjan og óþolið gagnvart öllu innfluttu eða öðruvísi.“