- Advertisement -

Grímulaus hræðsluáróður og ósannindi

„Tíðindi gærdagsins eru að Sjálfstæðisflokkurinn er á góðri leið með að dæma sig úr leik í vitrænni umræðu um Evrópusambandið og er einfaldlega kominn í grímulausan hræðsluáróður og ósannindi,“ skrifaði Magnús Árni Skjöld Magnússon um fullyrðingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokksins.

Guðrún hafði orð á að þjóðin hafi ítrekað hafnað að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Magnús skrifaði:

„Í fyrsta lagi, þjóðin hefur aldrei hafnað aðild að Evrópusambandinu. Reyndar hefur jafnan verið meira fylgi við inngöngu en ekki, nema á tveimur tiltölulega stuttum tímabilum, í upphafi aldarinnar og á árunum eftir hrun. Í öðru lagi er nákvæmlega ekkert sem segir að þjóðin muni missa forræðið yfir auðlindum sínum við aðild að Evrópusambandinu. Þetta eru ekkert nema getgátur, sem byggja ekki á neinu handföstu.

Guðrún fullyrti að við myndum missa 200 mílna landhelgi og yrðum að sættast að fara til baka í 12 mílur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ef aðildarsamningur við Evrópusambandið myndi leiða til einhvers slíks, þá myndi þjóðin einfaldlega hafna honum. Þannig að hvað er eiginlega að óttast? Formaður Sjálfstæðisflokksins lét meira að segja að því liggja að ávinningur þorskastríðanna myndi tapast með aðild að Evrópusambandinu! Þetta sýnir auðvitað best hversu örvæntingarfull þessi klíka sem hefur stýrt landinu allt frá lýðveldisstofnun er orðin í að koma í veg fyrir að þjóðin fái sjálf að ákveða stöðu sína í samfélagi þjóðanna og að við kjósum að auka fullveldi okkar og öryggi í nánara sambandi við aðrar Evrópuþjóðir. Áfram Íslendingar! Áfram Ísland!“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: