Greinar

Guðjón um Guðrúnu: „Óneitanlega svolítið skopparakringlulegt“

By Miðjan

September 11, 2025

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur skrifaði eftirfarandi:

„Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórnin það á stefnu sinni að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 2027 um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við ESB. Í gær sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í eldhúsdagsumræðum að þjóðin hefði ítrekað hafnað að ganga í ESB. Er henni eitthvað farið að förlast? Enginn kannast við að þjóðin hafi verið spurð álits um þetta. Fyrrnefnd boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla snýst ekki heldur um það, heldur hvort taki eigi upp viðræður. Ef sú verður raunin og samningar takast verður svo önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um þá. Lýðræðislegra getur það varla verið.

Guðrún er allt í einu orðin mjög neikvæð í þessum efnum hvernig sem á því stendur, öfugt sem hún var árið 2014. Þá var viðtal við hana í Frjálsri verslun (1.febr. 2014, bls. 46). Þar stóð: Hún vill klára aðildarviðræðurnar við ESB og segist treysta þjóðinni fyrir niðurstöðunni“. Með fylgir líka mynd úr Viðskiptablaðinu sama ár. Hvers vegna hefur blessuð konan skipt svona rækilega um skoðun auk þess sem hún heldur fram þeirri vitleysu að þjóðin hafi ítrekað hafnað að ganga í ESB. Óneitanlega svolítið skopparakringlulegt.“