Stjórnmál

Guðlaugur Þór bendir á Þorstein Pálsson

By Miðjan

February 19, 2026

Alþingi: Enn og aftur var deilt hart á Alþingi vegna grásleppumálsins. Guðlaugur Þór lét sitt ekki eftir liggja:

„Það er með ólíkindum að fylgjast með gassaganginum hjá hæstvirtri ríkisstjórn við að koma þessu máli í gegn. Þetta er stórt mál á ábyrgð Viðreisnar. Þetta eru tímamót vegna þess að það hefur verið sátt um það í mjög langan tíma að fara eftir veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og vera með aflamarkskerfi, þótt menn hafi ýmsar skoðanir á því, til að vernda lífríki sjávar. Nú er það þannig, virðulegur forseti, að sá aðili sem kannski ber mesta ábyrgð á því og á þakkir fyrir er annar af tveimur hugmyndafræðingum Viðreisnar.

Þeir eru tveir: Ole Anton Bieltvedt og Þorsteinn Pálsson. Þorsteinn Pálsson sem sjávarútvegsráðherra háði harða baráttu fyrir því að menn myndu fara eftir vísindum þegar ákveðið væri hvernig ætti að nýta auðlindir sjávar. Viðreisn og hæstvirt ætla núna að ganga skrefið til baka, áratugi aftur til baka. Það verður áhugavert að lesa pistla hugmyndafræðings Viðreisnar þegar þetta hefur verið klárað, virðulegi forseti.“