Stjórnmál

Guðlaugur Þór kom Daða Má á óvart

By Miðjan

June 12, 2026

Alþingi: Þeir Guðlaugur Þór Þórðarson og Daði Már Kristófersson tókust á í Alþingi. Við byrjum á seinni ræðu GÞÞ og svo kemur seinni ræða DMK. Tenglar á fyrri ræður þeirra eru fyrir neðan hið skrifaða mál.

Hér kemur Guðlaugur Þór:

„Menn geta þvælt um þetta til og frá en breytingin er alveg skýr: Það liggur fyrir að sparnaður verður minni. Það liggur fyrir að atvinnuleysi verður meira, það kostar. Það liggur fyrir að hagvöxtur verður minni, það þýðir minni tekjur. Og það liggur líka fyrir að það er alveg örugglega — þetta verkefni er ekki af þeirri stærðargráðu að það sé ekki hægt að uppfæra fjármálaáætlun.

Það sem hæstvirtur fjármálaráðherra og hæstvirtur forsætisráðherra eru að segja er: Við erum ekkert að gera með lög um opinber fjármál. Það er bara það sem þau eru að segja. Það hefur verið boðið upp á það af hálfu stjórnarandstöðunnar að við hittumst hérna í ágúst ef þau þurfa svona mikinn tíma til að uppfæra þetta. Þeim hefði náttúrlega verið í lófa lagið að gera það ef það hefði verið ástæða til þess.

En ég vek bara athygli á því að hér er verið að ganga frá fjármálaáætlun. Meiri hluti fjárlaganefndar er búinn að viðurkenna hið augljósa, að forsendur eru brostnar og ríkisstjórnin setur kíkinn fyrir blinda augað og gefur ekkert fyrir allar þær breytingar sem voru gerðar til þess að vanda verklag við opinber fjármál,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson.

Þá er það Daði Már:

„Það er auðvitað alls ekki þannig, svo að ég komi aftur inn á það sem ég sagði, að þetta komi neinum hér á óvart. Það var lagt upp með þetta verklag. Allir hér í salnum gengu inn í það vitandi hvernig að þessu yrði staðið. Þetta var mjög vel kynnt.

Ég vil aftur ítreka að beri háttvirtur þingmaður saman spá Seðlabankans núna og spár Seðlabankans í gegnum tíðina þá eru ekki meiri breytingar þar heldur en hafa orðið milli spáa í gegnum tíðina og þó að það sé áreiðanlega rétt að einhver kostnaður hækki þá verður líka að gera ráð fyrir því að það eru tekjur sem hækka í þessari áætlun líka. Þess vegna kemur mér á óvart hversu afgerandi fullyrðingar háttvirts þingmanns Guðlaugs Þórs Þórðarsonar eru, vegna þess að það er svo sannarlega ekki mat sérfræðinga á sviðinu að þetta sé svona skýrt,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.

Hér er fyrri ræða Guðlaugs Þórs:

Og svo fyrri ræða fjármálaráðherra: