Stjórnmál

Guðrún vill gjörbreytt RÚV

By Miðjan

September 22, 2025

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur Sona Egils á Samstöðinni í gærdag. Viðtalið var langt og margt sem bar á góma. Eitt af því var bág staða fjölmiðla. Talið barst að RÚV.

Guðrún sagðist vilja breyta RÚV lifandis helling. Hún vill afnema nefskattinn og breyta RÚV verulega. Guðrún sagðist vilja sjá að RÚV hefði aðeins eina útvarpsrás og eina sjónvarpsrás sem myndi takmarkast við íslenskt efni og norrænt. Annað ekki.

Hér er unnt að horfa eða hlusta á allt viðtalið.