Mannlíf

Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju

By Miðjan

July 01, 2014

Menning Anna Jónsdóttir, sópransöngkona og Kári Allansson, organisti Háteigskirkju, flytja fjölbreytta dagskrá á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju í hádeginu á morgun, fimmtudag. Tónleikarnir hefjast klukkan 12:00.

Flutt verða m.a. íslensk þjóðlög, aríur úr stærri verkum eftir Bach og Purcell, Drottinn er minn hirðir úr Biblíuljóðum Dvořáks og You never walk alone eftir Rogers and Hammerstein.