- Advertisement -

HÆ AFTUR VILHJÁLMUR

Hann fullyrti að þjóðsöngs-tippadansinn í fyrradag hefði verið “óviðeigandi gálgahúmor eins einstaklings”.

Katrín Oddsdóttir skrifaði:

Í gær var talsvert fjallað í fjölmiðlum um skammarpóst sem verkalýðsforinginn Vilhjálmur Birgisson skrifaði til atvinnuvegaráðherra.

Þar lagði hann henni heldur betur línurnar og fussaði yfir að hún stæði ekki með atvinnufrelsi hvalveiðifólks.

Hann fullyrti að þjóðsöngs-tippadansinn í fyrradag hefði verið “óviðeigandi gálgahúmor eins einstaklings” og sagði: “Við eigum að sjálfsögðu að gera þá kröfu að starfsmenn komi fram af fagmennsku og virðingu og ég veit að það gera þeir í 99,99% tilfella við sín störf.“

Hér er mynd sem tekin var ljósmyndaranum Imogen Sawyer af starfsfólki hvalveiðistöðvarinnar árið 2023 sem sannar að þessi ömurlega vanvirðing gagnvart dýrunum er ekki ný á nálinni.

Veit ekki hvort þú heldur Vilhjálmur minn að þarna hafi fyrir tilviljun tekist að fanga þessi 0,01% í tvígang, en ég leyfi mér að efast.

Þetta er og verður villimannsleg tímaskekkja sem svertir orðspor þeirra sem stunda veiðar á Íslandi, með tilheyrandi hættu á skerðingu atvinnufrelsis þúsunda.

Enginn nema þú virðist lengur hafa geð á að svara fyrir störf Hvals hf sem einkennast af margs konar lögbrotum. Það næst ekki einu sinni í hárnetsprinsinn Kristján.

Er ekki bara komið gott af því að verja þessa vitleysu þó einhverjir á Akranesi fái vel borguð sumarstörf sirka þriðja hvert ár?

Það finnst mér og það finnst meiri hluta þeirra sem taka afstöðu til hvalveiða.

Í öllu falli held ég að það sé góð hugmynd að hætta að skamma Hönnu Kötu í bili.

Eigðu annars góðan dag.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: