- Advertisement -

HÆ VILHJÁLMUR!

Það er ekki hægt að réttlæta þessa villimannslegu tímaskekkju sem veiðarnar eru lengur og það þarf Vilhjálmur að sætta sig við áður en hann geysist fram og hrútskýrir frekar fyrir Hönnu Katrínu hvernig hún eigi að vinna sínu vinnu.

Katrín Oddsdóttir skrifaði:

Ég skil ekki af hverju Vilhjálmur Birgisson er farinn að haga sér eins og PR fulltrúi Hvals hf. (sjá endalaus varnarorð hans undanfarnar vikur um allt sem aflaga fer hjá félaginu og nýjustu fréttina hér í athugasemd).

Leyfi mér að demba hér nokkrum leiðréttingum á þeirri tilfinningaþrungnu fésbókarfærslu sem fréttin fjallar um:

1. Atvinnuvegaráðherra „á ekki“ að standa með starfsfólki Hvals eins og hann heimtar, með karlafrekjutóni að mér finnst. Hanna Katrin á allt eins að standa sem starfsfólki ferðaþjónustu og Íslendingum sem vilja ekki láta auðmýkja orðspor þessarar þjóðar með ömurlegri framkomu starfsfólks Hvals, sem vafalaust ratar í heimsréttir.

2. Þetta sem við sáum í gær var ekki “ óviðeigandi gálgahúmors eins einstaklings“ heldur einhvers konar „group mentality“ þar sem allir starsfmenn flissuðu með, spiluðu lofsönginn og settu hönd á brjóst á meðan dýr, sem sætti fullkomlega tilgangslausum dauða, var dregið á land. Munum það er enginn markaður fyrir þessar afurðir.

Rangt að ráðherrann hafi ekki gagnrýnt Paul Watson.

3. Rangt að ráðherrann hafi ekki gagnrýnt Paul Watson og þann skrípaleik sem honum fylgir því hún gerði það einmitt í viðtalinu, sem ég velti hreinlega fyrir mér hvort Villi hafi lesið? Ekki nóg með það heldur er samflokkskona hennar í dómsmálaráðuneytinu að bjóða upp á heilt varðskip að eltast við þessa trúðalest, en skipið er fullt af sérsveitamönnum á launum, á meðan stærsta kókaínsending sögunnar kemur inn í landið í tveimur mismunandi höfnum. Það er því algjört rugl að halda því fram að ráðamenn séu ekkert að gera í þessu Paul Watson fíaskói.

4. Þessi setning er svo algjör kapítuli út af fyrir sig: „Ég vil jafnframt skora á atvinnuvegaráðherra að sýna starfsmönnum Hvals þann skilning, þá virðingu og þann stuðning sem þeir eiga skilið. Skylda ráðherra er ekki aðeins að gagnrýna þegar eitthvað fer úrskeiðis heldur einnig að standa vörð um rétt fólks til að stunda löglega atvinnu sína í friði.“ Hefur Hanna Katrín ekki einmitt sýnt mjög mikinn stuðning við þessa fáránlegu atvinnugrein með því að gefa út leyfi til veiða mjög tímanlega og án nokkurra skilyrða, þegar lögmæti þessara veiða er í besta falli mjög vafasamt? Gráttu mér læk, Vilhjálmur.

5. Svo er það þessi setning: „Við eigum að sjálfsögðu að gera þá kröfu að starfsmenn komi fram af fagmennsku og virðingu og ég veit að það gera þeir í 99,99% tilfella við sín störf.“ Nú liggur fyrir að sex eftirlitsskýrslur hafa verið birtar, það er fyrstu sex dýrin af þeim þeim er HELMINGUR skotinn oftar en einu sinni sem er frávik og í andstöðu við lög um velferð dýra. Ótrúlega merkilegt að 50% sé frávik miðað við þá óyggjandi tölfræði sem Vilhjálmur birtir um að 99,99% tilfella starfa Hvals einkennist af „fagmennsku og virðingu“.

Það er ekki hægt að réttlæta þessa villimannslegu tímaskekkju sem veiðarnar eru lengur og það þarf Vilhjálmur að sætta sig við áður en hann geysist fram og hrútskýrir frekar fyrir Hönnu Katrínu hvernig hún eigi að vinna sínu vinnu.