Greinar

Hafa engu tapað við inngöngu í ESB

By Miðjan

June 23, 2026

Benedikt Jóhannesson skrifaði:

Síðastliðinn föstudag birtist athyglisverð grein í Morgunblaðinu eftir Ragnar Árnason hagfræðing um efnahagslega hnignun ESB. Hann segir:

„Síðan [1990] hefur efnahagsleg frammistaða ESB verið slök miðað við aðrar þjóðir heims að jafnaði og sambandið verið að dragast aftur úr. Samkvæmt hagtölum Alþjóðabankans um verga landsframleiðslu ríkja heims … hefur hlutdeild ESB í vergri heimsframleiðslu fallið úr 28,4% árið 1990 í 17,6% árið 2024 og er nú þriðjungi minni er hlutdeild Bandaríkjanna og svipuð hlutdeild Kína.“

Þetta fannst mér áhugavert því undirliggjandi í greininni er að með inngöngu í Evrópusambandið myndi Ísland sogast inn í efnahagslegt hnignunarbandalag.

Nú er Evrópusambandið samsett af 27 frjálsum og fullvalda þjóðum. Ég ákvað því að kanna hvernig ríkjunum tuttugu og sjö hefði vegnað á 21. öldinni, hverju um sig. Eru öll ný aðildarríki ef til vill drepin í dróma reglugerða og efnahagshnignunar?

Á myndinni má sjá hvernig landsframleiðsla á mann hefur breyst innan sambandsins frá árinu 2000. Hún er greinilega með mjög misjöfnum hætti.

Í ljós kemur að nær öll nýju ríkin hafa náð góðum hagvexti, en þau gömlu hafa staðið sig lakar. Íslendingar, með sínar gullhúðuðu reglugerðir, eru í miðju, milli Bandaríkjamanna og Dana.

Þróunin gefur vissulega tilefni til áhyggna fyrir löndin á neðri endanum, til dæmis Portúgal, Frakkland, Kýpur, Ítalíu og Grikkland.

En fyrir nánast öll „nýju löndin“ hefur aðild greinilega ekki verið þeim efnahagsfjötur um fót.