Greinar

Hamfarahægrið hefur í tuttugu ár hamast á að allt sé í klessu í Reykjavík

By Miðjan

October 28, 2026

Borgarstjórn:

Atli Þór Fanndal:

„Núverandi meirihluti í Reykjavík tók ekki við skelfilegri fjárhagsstöðu. Þetta eru trúarbrögð og afsökun til að útvista , eyðileggja og reka. Reykjavík var ótrúlega vel rekin. Skuldar minna á hvern íbúa en stærri sveitarfélög almennt. Veitir betri þjónustu og meiri oft á lægra verði. Borgin er drifkraftur menningarstarfsemi og uppbyggingar. Með glæsilega eignastöðu og þjónustu sem íbúar annarra sveitarfélaga sækja í. Enda höfuðborg.

Hamfarahægrið hefur í tuttugu ár hamast á að allt sé í klessu og að hruni komið. Garðabær skuldar meira á íbúa. Kópavogur er í halla og Seltjarnarnes er í þroti þrátt fyrir sníkjudýralifnað.

Þetta Project 2026 MAGA blitzkrieg rugl í hamfarahægri pækluðum íhaldsmönnum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsókn er ekkert annað en keppni í ógn og grimmd. Þau ætla að sýna baklandinu að þau hreinsi sko út fyrir menningarstríðinu gegn vók og mannréttindum. Og um leið snýst þetta um að viðhalda 20 ára sjálfsblekkingu um að borgin hafi verið á barmi gjaldþrots án Valhallar. Þetta er the ultimate identity pólitik. Hrein og klár steypa. Allt fyrir baklandið og ego.“