Stjórnsýsla: Bryndísi Hlöðversdóttur er skákað úr ráðuneytisstjóra atvinnuvegaráðuneytisins og henni er ætlað að verða sérfræðingur innan ráðuneytisins, að segir í tilkynningu.
Við starfi ráðuneytisstjóra tekur Kolbeinn Árnason. Hann hefur starfað nokkuð víða og meðal annars var framkvædastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Áður gegndi Kolbeinn starfi skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins, hann var fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins hjá fastanefnd Íslands við Evrópusambandið í Brussel og skrifstofustjóri á skrifstofu fiskveiðistjórnunar í sjávarútvegsráðuneytinu.
Fólk sem hefur gagnrýnt starf Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra rís eflaust upp á afturfæturna við þessar fréttir.