Greinar

„Hárblásarinn“ í stjórnarráðinu

By Miðjan

November 07, 2026

Davíðstíminn:

„Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson hafa skrifað bók um Davíð Oddsson. Af því tilefni er rætt við þá feðga í DV. Í þessum stutta kafla sem hér er birtur, hefur Reynir orðið:

Þetta er húmor og harka sem svona blandast saman og það er eins og með einkavæðinguna að Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ og stjórnarformaður í Glitni, þeir fá þá hugmynd, bankaráðið, að þeir ætla að bjóða í Landsbankann þegar búið er að auglýsa hann.

Það koma skilaboð úr stjórnarráðinu um að þetta verði ekki leyft, að þeir bjóði í Landsbankann, Íslandsbanki, og þá er ákveðið að bankaráðinu að senda Val Valsson bankastjóra og Kristján Ragnarsson bankaráðsformann á fund Davíðs til að reyna að róa leikinn. nema að það verður úr að Kristján fer einn með þessa samþykkt bankaráðsins á bakinu og þar gustaði nú heldur betur. Það er eins og talað er um, það er bara hárblásarinn á Kristján sem var nú hörkutól, að vísu grátgjarnt hörkutól.“