- Advertisement -

Heiftin í Samfylkingunni

„Einnig er því til að svara, að þrátt fyrir að í uppstillingarnefnd sé heiðarlegt vel meinandi og gott fólk, þá finn ég mjög fyrir nöprum næðingi heiftar, sem ég ræð ekki við að stöðva. Ekki frekar en troða strigapoka upp í norðangáttina,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Birgis Dýrfjörð, sem sagði sig úr uppstillinganefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Miðjan hefur komist yfir afrit af yfirlýsingunni. Ljóst er að Birgir er ósáttur með stöðu Ágústs Ólafs Ágústssonar, sem mun að óbreyttu ekki fá sæti framarlega á framboðslista Samfylkingarinnar.

Yfirlýsing frá Birgi Dýrjörð.

 Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar  í Reykjavík hefur það hlutverk að setja saman framboðslista fyrir Alþingiskosningarnar 2021.

Þú gætir haft áhuga á þessum

 Ég hef starfað í uppstillingarnefnd undanfarið en hef nú sagt mig frá því starfi.

 Í upphafi undirrituðum við í nefndinni þagnarheit um það;  hverjir ræddu og hvernig rætt var um það fólk, sem til álita kom sem frambjóðendur.  Slíkt heit er forsenda þess að hver og einn geti sagt hug sinn um þau, sem vildu vera í framboði.

 Þetta þagnarheit vil ég ekki rjúfa.  Mér er því aðeins fært að ræða mínar persónulegu ástæður fyrir brottför minni úr nefndinni.

M/fs:  Alkohólistar.

Ég hef oft lent í því að drekka mig úr karakter, og ausa svívirðingum og tilhæfulausum ásökunum yfir fólk.

  Á komandi sumri eru liðin 40 ár frá því ég viðurkenndi fyrir sjálfum mér vanmátt minn gagnvart áfengi.  Ég hringdi þá á Silungapoll og óskaði eftir, og fékk aðstoð.

 Þar var ég í afeitrun í 11 daga.

  Nítján félaga minna fóru í meðferð á Sogni. Ég ákvað að fara ekki í meðferð en styðjast þess í stað við fundi AA samtakanna.

   Þar lá mín lausn, og hún hefur dugað óslitin í 40 áfengislaus ár.   

  Ég er svo lánsamur að hafa umgengist gott fólk, sem aldrei hefur núið mér því um nasir, hve oft ég varð mér til skammar drukkinn.       

  En það breytir ekki því að ég tek mjög nærri mér þegar væn manneskja  hefur leitað sér lækningar, og sannanlega náð góðum bata, og bætt ráð sitt, er dæmd vanhæf og brottrekin með þeim rökum, að  hún sé ekki traustsins verð  vegna fyrri hegðunar í ölæði. 

  Það finnst mér skelfilegt ódæðisverk gegn óvirkum alkohólistum.

  Ég óttast að Samfylkingin fremji nú það ódæðisverki gegn óvirkum alkohólistum. 

  Þar vil ég ekki vera.  Því segi ég af mér, – og get ekki annað.

  Eðlilegt er að spurt sé, af hverju fer ég af vettvangi?  Af hverju tek ég ekki slaginn? 

  Því er til að svara, að ég hef ekkert dagskrárvald í málinu.  Það hefur formaðurinn einn.

   Einnig er því til að svara, að þrátt fyrir að í uppstillingarnefnd sé heiðarlegt vel meinandi og gott fólk, þá finn ég mjög fyrir nöprum næðingi heiftar, sem ég ræð ekki við að stöðva. Ekki frekar en troða strigapoka upp í norðangáttina.      

                                               ( Höfundur er í flokksstjórn Samfylkingarinnar)



Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: