Greinar

„Hinir fáu efnuðu féfletta fjöldann, með leyfi og aðstoð löggjafans“

By Miðjan

February 22, 2026

Umræðan: Ragnar Önundarson skrifaði eftirfarandi:

Til þeirra sem ekki stendur á sama um þróun íslensks samfélags:

„Nú eru afkomutilkynningar fákeppnisfélaganna teknar að berast okkur. Félögin og hluthafarnir fagna, en almenningur borgar. Munum að í fákeppni er oftast hörð samkeppni um stóru kúnnana, en engin eða sáralítil um viðskipti heimila og smáfyrirtækja. Það eru þau sem borga sjálftöku arðs og launa forréttindafólksins.

Auðurinn þjappast saman á fárra hendur. Hann er ávaxtaður á fjármálamarkaði. Þaðan kemur lánsfé, m.a. til kaupa á húsnæði. Næstum allir nota lánsfé í því skyni. Lengi voru vextir þessara lána frádráttarbærir til skatts, en var afnumið fyrir ca. aldarfjórðungi síðan. Á sama tíma var lagður eignarskattur á hreina eign, eignir umfram skuldir. Þetta vann gegn samþjöppun auðs, en eignarskattur var líka afnuminn, í stað þess að hækka skattleysismörkin.

Það er eins og stjórnmálamenn okkar sjái ekki heildarmyndina. Orka þeirra fer í rifrildi, sem ætlað er að ávinna þeim atkvæði. Það er skaðlegt. „Róm var ekki brennd á einum degi,“ sagði maðurinn. Þetta langtímaástand veldur massífri samþjöppun auðs. Hinir fáu efnuðu féfletta fjöldann, með leyfi og aðstoð löggjafans.“