Forseti emerítus Ólafur Ragnar er sjaldan langt undan þegar kemur að Evrópubálinu.
Grímur Atlason skrifaði:
„Í Morgunblaðinu í dag, sem er í aldreifingu, má lesa um ágæti Sviss og Bretlands og óágæti Evrópusambandsins. Það er Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem leiðir lesendur í allan sannleikann um þessi mál í opnugrein með fáum myndum. Fjölmargar aðrar greinar um sama efni eru í blaðinu sem eiga það sameiginlegt að vera skrifaðar út frá einu sjónarmiði.
En það eru ekki bara greinar um skelfinguna sem bíður íslenskrar þjóðar ef hún asnast til að segja já í lok ágúst. Þar er einnig að finna „fréttir“ og heilsíðuauglýsingar um Evrópuvána. Forseti emerítus Ólafur Ragnar er sjaldan langt undan þegar kemur að Evrópubálinu. Á einni heilsíðuauglýsingunni kemur fram að hann muni stýra fundi í næstu viku þar sem Carl Baudenbacher ku verða ómyrkur í máli um bálið og hremmingarnar á meginlandinu.
Það er nú gott að fá svona sendingu inn um lúguna þegar fólk gæti farið að velta fyrir sér raunveruleikanum. Hinum alséríslenska raunveruleika. Hér er hann og samkvæmt honum þá skörum við fram úr og bætum bara í núna um miðjan ágúst ef eitthvað er að marka greiningadeildirnar. Munum að segja Nei í lok ágúst því annars er hætt við að við missum forystu okkar á stýrivaxtamarkaðnum…“

Greinina birti Grímur á Facebook.