Mynd: mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir.

Greinar

Höft á útflutning á óunnum fiski

By Miðjan

November 06, 2026

Sjávarútvegur:

mbl.is:

„Starfshópur vinnur að tillögum til ráðherra vegna afla sem fluttur er óunninn úr landi. Minnisblað verður innlegg í breytingar sem unnið er að á lögum um stjórn fiskveiða, að því er fram kom í máli Hallveigar Ólafsdóttur, skrifstofustjóra í atvinnuvegaráðuneytinu, á Sjávarútvegsráðstefnunni í gær. Hún flutti ræðu ráðherra sem er erlendis.

Á ráðstefnunni var fjallað um mögulega orðsporsáhættu fyrir vörumerki íslensks bolfisks sem dæmi væru um að hefði ratað gamall í erlendar vinnslur. Aukinn útflutningur á óunnum fiski var tengdur við strandveiðar og VS-pott og stungið upp á að setja honum skorður.

Hallveig sagði unnið að fleiri lagabreytingum, svo sem frumvarpi um stórþörunga. Þá væri mikið ákall eftir nýrri löggjöf um lagareldi. „Mál sem er ekki á þingmálaskrá vetrarins en ráðherra bindur engu að síður vonir við að nái fram að ganga,“ sagði hún.“