Frá Miklubraut.

Greinar

Höfuðborgin útundan í samgöngum

By Miðjan

June 13, 2026

Samgöngur: Kristinn Hrafnsson blaðamaður og ritstjóri skrifaði:

„Af því að það er nú altalað að þingið sé ábyrgt fyrir því að leyfa skattpeniningum að streyma til okkar hér fyrir sunnan fór ég að leita eftir framkvæmdum á þjóðvegum í höfuðborginni í nýsamþykktri samgönguáætlun. Ekkert naglfast þar.

Ég hafði sérstakan áhuga á framkvæmd við göng undir Miklubraut en umferð þar um yfirborðsgötu hvellsprakk fyrir svona 10-20 árum. Þar hefur lítið miðað. Enn eru í gildi gömul plön um að klára það verk eftir 12 ár eða 2038 en göngin eru áformuð 2,8 km löng – ef af þeim verður. Auðvitað er þetta skiljanleg töf því miklu brýnna er að bora göng á stöðum þar sem eru nánast engir bílar og fólkið fátt. Við verðum bara að hinkra.

Það er heldur ekki búið að fastsetja útí heimi hvenær fyrsta mannaða geimfarið verður sent til Mars en það er eitthvað um 500 milljón kílómetra ferðalag. Menn eru svona að láta sig dreyma um að það verði einhvern timann á bilinu 2035 – 2040.

Þetta verður spennandi keppni: hvor verður á undan, fyrsti bíllinn um Miklubrautargöngin eða fyrsti maðurinn sem stígur á Mars.

Í Færeyjum fóru menn í gerð ganga undir Þórshöfn 1,7 km löng. Hófu framkvæmdir 2023, brutu í gegn 2024 og opnuðu göngin fyrir umferð í fyrra. Ég tel réttast að Færeyingur verði fyrsti maðurinn til Mars.“