Fréttir

Hörð átök vegna verkfallsins

By Miðjan

February 09, 2023

Þessu myndbandi eru Íslandshótel að dreifa til að sanna að ég sé að „áreita gesti“ hótelanna. Ég hvet ykkur af öllu hjarta til að horfa á myndbandið og deila því svo, því að þarna næ ég að miðla mikilvægum upplýsingum til allra þeirra sem að hafa áhuga á að fræðast um þau stórfelldu verkfalls-brot sem verið að fremja á hótelunum, með liðsinni hálauna-lögmanna SA.

Og svo hvet ég ykkur auðvitað líka til að horfa á myndbandið því að það er ekkert annað en sprenhlægilegt að stjórnendur Íslandshótela skuli virkilega telja að það sé slæmt „publicity“ fyrir mig og félaga mína í verkfallsvörslunni. Þetta fólk er bókstaflega flutt í einhvern stórfurðulegan hliðar-veruleika!

https://www.visir.is/k/b6f081f2-3a5a-4a06-8777-ca5c0c6ad408-1675958751547?fbclid=IwAR0H8gAygd2TGBGkK00YnBUys8Z9nHYUY-v7c_Su6zDxMDDYSOwGWo6pfGM