Húmoristi ársins!
Össur skrifaði:
„NEI-ararnir hafa skipt um gír og eru komnir í húmorinn. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður í ónefndum flokki, fer fremst í hópi jafningja og verðskuldar svo sannarlega sæmdarheitið „húmoristi ársins“.
„Ef að við værum inní Evrópusambandinu og myntbandalaginu að þá myndi það þýða að byrjun apríl myndi verða slökkt á öllum ofnum og allri kyndingu á heimilum á Íslandi og ekki kveikt aftur fyrr en í lok október…“ (G.H., Útvarp Saga, 19. ágúst).
Mér varð hugsað til vinar míns Ólafs Ragnars sem svo sannarlega er húmoristi af guðs náð. Hann hlýtur að veltast um af hlátri alla daga í þessum bráðfyndna félagsskap.
Jafnvel Stefán Einar og Mogginn gætu ekki logið þessu upp!“