- Advertisement -

Húsnæðisvandinn er augljóslega líka gríðarlegur innan Evrópusambandsins

Vilhjálmur Birgisson skrifar:

„Við eigum ekki að selja ungu fólki þá tálsýn að húsnæðisvandinn hverfi með inngöngu í ESB eða upptöku evru þegar ný gögn frá stofnun Evrópusambandsins sjálfs sýna svart á hvítu hversu alvarlegur húsnæðisvandi ungs fólks er innan sambandsins.“

„Húsnæðisvandi ungs fólks er ekki séríslenskt fyrirbæri – ný skýrsla Eurofound sýnir alvarlega stöðu innan ESB

Það er enginn vafi á því að ungt fólk á Íslandi stendur frammi fyrir miklum áskorunum á húsnæðismarkaði. Fasteignaverð er hátt, húsaleiga hefur hækkað mikið og háir vextir gera ungu fólki erfitt fyrir að komast inn á fasteignamarkaðinn.

En það er mikilvægt að umræðan byggist á staðreyndum. Þann 17. desember 2025 gaf Eurofound – stofnun Evrópusambandsins um lífs- og starfsskilyrði – út 100 blaðsíðna rannsóknarskýrslu sem ber heitið Foundational challenges: The housing struggles of Europe’s youth. Skýrslan fjallar sérstaklega um stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði innan Evrópu.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Frá Stokkhólmi.
Mynd: Catalina Johnson/Unsplash.com

Niðurstaða Eurofound er skýr: Evrópa stendur frammi fyrir alvarlegri krísu varðandi aðgengi að húsnæði og áhrifin eru sérstaklega mikil á ungt fólk. Samkvæmt skýrslunni finnur ungt fólk almennt meira fyrir húsnæðiskreppunni en eldri aldurshópar. Sérstaklega er staðan erfið í borgum og á vinsælum ferðamannasvæðum þar sem ungt fólk leitar gjarnan eftir atvinnu.

Eurofound bendir jafnframt á að húsnæðiskreppan sé farin að hindra ungt fólk í að stofna sjálfstætt heimili. Margir ungir Evrópubúar búa enn í foreldrahúsum þótt þeir vilji sjálfir búa sjálfstætt eða með maka. Í frekari umfjöllun Eurofound um rannsóknina kemur fram að fasteignaverð innan ESB hafi hækkað um meira en 55% frá 2010 og leiga um 27%, en í nokkrum aðildarríkjum hafi fasteignaverð meira en þrefaldast. Á sumum svæðum getur kostnaður við að leigja byrjendahúsnæði tekið 60–70% af tekjum ungs fólks eða jafnvel meira.

Þetta þekkjum við svo sannarlega hér á Íslandi. Ungt fólk glímir við hátt fasteignaverð, háa húsaleigu, erfiðleika við að safna fyrir útborgun og mikinn fjármagnskostnað.

„Ný gögn frá stofnun Evrópusambandsins sjálfs sýna svart á hvítu hversu alvarlegur húsnæðisvandi ungs fólks er innan sambandsins.“

En þessi nýlega skýrsla Eurofound sýnir líka hversu varasamt það er að halda því fram að íslenska krónan ein og sér sé orsök húsnæðisvanda ungs fólks hér á landi eða að ESB-aðild og upptaka evru leysi vandann sjálfkrafa. Húsnæðisvandinn er augljóslega líka gríðarlegur innan Evrópusambandsins og ungt fólk þar á í miklum erfiðleikum með að koma sér upp eigin húsnæði.

Við eigum að ráðast af fullum krafti á vandann hér heima – auka framboð húsnæðis, skapa raunhæfar leiðir fyrir ungt fólk inn á húsnæðismarkaðinn og ná niður verðbólgu og vöxtum. En við eigum ekki að selja ungu fólki þá tálsýn að húsnæðisvandinn hverfi með inngöngu í ESB eða upptöku evru þegar ný gögn frá stofnun Evrópusambandsins sjálfs sýna svart á hvítu hversu alvarlegur húsnæðisvandi ungs fólks er innan sambandsins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: