Skoðun:
Þorvaldur Gylfason skrifaði:
Nú, þegar margt virðist benda til þess að misklíðin í kringum Landsvirkjun stafi af leynilegum bollaleggingum eða áformum um sölu fyrirtækisins eða hluta þess til einkaaðila, vaknar sú áleitna spurning hvers vegna enginn þingmaður krefst þess að Alþingi staðfesti loksins nýju stjórnarskrána, sem kveður á um að auðlindir landsins séu „sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar“ og myndi þannig girða fyrir slíka sölu. Hvað eru þingmenn Samfylkingarinnar að hugsa? Viðreisnar? Flokks fólksins?