Stjórnmál: Þrátt fyrir fínasta sigur í kosningunum virðist ekkert miða hjá Hildi Björnsdóttur með myndun nýs meirihluta. Hvað ætli valdi því?
- Nær Hildur ekki réttum tökum á borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins?
- Hræðist Hildur að vera bara með eins manns meirihluta?
- Vilja fulltrúar Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vinna hver með öðrum?
- Endar Hildur á að banka upp á hjá Samfylkingunni?
- Á Pétur í Samfylkingunni möguleika á að mynda nokkurra flokka meirihluta?
- Eða er það eitthvað annað sem gerir að Hildi virðist ekkert ganga?
Allt er þetta undarlegt. Ef Hildur hefur ekki dug í sér eða rétt bakland til að taka yfir völdin í Reykjavík er illa fyrir sigurvegaranum komið.