- Advertisement -

Hvað vill Bjarni Ben upp á dekk?

„En hörð andstaða systurflokks Miðflokksins á hollenska þinginu við lausn á sér íslenskum hagsmunum kom aftur á móti ekki óvænt.“

Bjarni Ben krafði Þorgerði Katrínu svars um það sem hann vildi fá svör við. Bjarni hrökklaðist úr stjórnmálum eftir síðustu kosningar. Hann hefur ekki lengur sömu stöðu og áður og getur sennilega og vonandi ekki krafist eins né neins. Þorsteinn Pálsson, sem á það sameiginlegt með Bjarna að hafa verið formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði um þetta í nýjustu grein sinni á eyjan.is.

Þorsteinn skrifaði meðal annars:

„Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins krafðist skýringa utanríkisráðherra á samtölum við forystumenn aðildarríkja Evrópusambandsins. Gerði hann því skóna, án þess að segja berum orðum, að utanríkisráðherra hefði greint ranglega frá slíkum samtölum.

Tilefnið var svar forsætisráðherra Hollands á þingi við fyrirspurn frá þingmanni systurflokks Miðflokksins og MAGA hreyfingarinnar um mögulegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnunni. Svar forsætisráðherrans var neikvætt þótt ríkisstjórn Hollands hafi, án skuldbindingar, fagnað áformum Alþingis um þjóðaratkvæði með þeim kröfum um sérlausnir, sem þeim fylgja.

Svar forsætisráðherrans kom á óvart. En hörð andstaða systurflokks Miðflokksins á hollenska þinginu við lausn á sér íslenskum hagsmunum kom aftur á móti ekki óvænt.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: