- Advertisement -

Hvað vill Halldór Benjamín?

Halldór Benjamín Þorbergsson skrifar langa grein í Mogga dagsins. Þar finnur mjög að því að Efling beiti sér gegn launaþjófnaði. Halldór Benjamín notar ódýrasta trixið. Hann kýs að segja að Efling saki alla launagreiðendur um að stela af launum starfsmanna. Sem er kolrangt.

„Aug­lýs­inga­her­ferð Efl­ing­ar hef­ur það mark­mið að stilla at­vinnu­rek­end­um og starfs­mönn­um upp sem and­stæðing­um. At­vinnu­rek­end­ur séu upp til hópa brota­menn sem veigri sér ekki við að hlunn­fara starfs­fólk sitt. Sú mynd sem Efl­ing dreg­ur upp af stjórn­end­um fyr­ir­tækja og Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins (SA) er bæði ómál­efna­leg og veru­leikafirrt.“

Þannig skrifar Halldór Benjamín. Meiri mannsbragur væri á honum ef hann legðist á árarnar með Eflingu og hjálpaði til við að stöðva þá sem stunda launaþjófnaðinn. Hann þykist hins vegar vera móðgaður.

„Þótt nefna megi dæmi um brot­lega at­vinnu­rek­end­ur þá er það staðreynd að í yf­ir­gnæf­andi meiri­hluta til­vika stofna ein­stak­ling­ar og reka fyr­ir­tæki af heil­ind­um. Þeir vilja búa til verðmæti fyr­ir sam­fé­lagið, skapa störf og koma vel fram við sitt starfs­fólk. Hags­mun­ir at­vinnu­rek­enda og starfs­manna liggja sam­an. Þegar fyr­ir­tækj­um lands­ins vegn­ar vel vegn­ar starfs­mönn­um einnig vel og raun­ar sam­fé­lag­inu öllu,“ skrifar Halldór Benjamín.

Hann verður að átta sig á að þó minnihlutinn stundi launaþjófnað verður samt að stöðva áfergju þeirra í laun starfsmanna.

Hvað vill Halldór Benjamín? Að ekkert verði fjallað um og ekkert verði gert til að stöðva launaþjófana? Svo má aldrei verða.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: