Greinar

Hvenær fer Áslaug Arna af ríkisspenanum?

By Miðjan

September 08, 2025

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ætlar að sjúga spenann þar til ekki fæst deigur dropi. Fyrsti varamaður í kjördæmi Áslaugar Örnu hafði ekki verið boðaður til þingstarfa um miðjan dag í gær. Áslaug Arna stundar, sem kunnugt er háskólanám í Bandaríkjunum, og hefur á sama tíma þegið full þingmannalaun. Mánuð eftir mánuð.

Auðvitað er framganga hennar alvond. Eðlilega er fylgst með hvernig hún hagar sér. Fólk sem er tilbúið að blóðmjólka ríkissjóð verður að skilja að það gengur gegn vilja flestra kjósenda. Líka Sjálfstæðisflokksins.

Kannski er ekki á vanda flokksins bætandi. Framgangan á Alþingi í sumar var mikið klúður. Á það er varla bætandi. Nú er spennandi að sjá hvort ríkisstúdentinn við Harvard láti sér segjast og hætti sjálftökunni. Það kemur í ljós hvað af hverju.