Kostir Evrópusambandsins felast fyrst og fremst í því að sambandið byggist á skýrum sáttmálum sem fullvalda ríki gera sín á milli.
Gauti B. Eggertsson.
Gauti B. Eggertsson skrifaði:
Ég óska þjóðinni gæfu í þessari atkvæðagreiðslu. Sjálfur er ég þeirrar einlægu trúar að skynsamlegt sé að láta reyna á samninga nú. Á hvorn veg sem fer er málinu þó hvergi nærri lokið.
Skjótt skipast veður í lofti. Svíþjóð hafði fylgt hernaðarlegri hlutleysisstefnu í meira en 200 ár. Aðeins 83 dögum eftir allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu sóttu Svíar um aðild að NATO. Ég get auðveldlega ímyndað mér aðstæður sem gætu knúið Ísland til að leita traustari pólitískrar og efnahagslegrar fótfestu í Evrópu — til dæmis ef EES-samningurinn liði undir lok.
Aðildarríkin
hafa neitunarvald
Fyrir litla, herlausa þjóð með tiltölulega einhæft atvinnulíf ráðast afkoma okkar og öryggi að verulegu leyti af traustum samskiptum við umheiminn. Í dag höfum við einstakt tækifæri. Það er ekki víst að leiðin verði jafn greið síðar og hún er nú.
Skipan öryggis- og varnarmála er að riðlast í veröldinni. Heimurinn virðist í vaxandi mæli skiptast í þrjár stórar viðskipta- og valdamiðjur: Kína, Bandaríkin og Evrópa. Ég tel óraunhæft að lítil þjóð standi án traustra bandamanna.
Kostir Evrópusambandsins felast fyrst og fremst í því að sambandið byggist á skýrum sáttmálum sem fullvalda ríki gera sín á milli. Aðildarríkin hafa neitunarvald í ýmsum veigamiklum málum og bera ekki lagalega ábyrgð á skuldum annarra aðildarríkja. Þau ákveða áfram reglur um eignarhald á auðlindum sínum, þótt nýting þeirra lúti sameiginlegum reglum á ákveðnum sviðum.
Vandinn við að ætla að tryggja framtíðarhagsmuni okkar í viðskiptum og varnarmálum fyrst og fremst með tvíhliða samstarfi við Bandaríkin liggur ekki í því að Bandaríkin hafi reynst okkur illa. Þvert á móti: Bandaríkin eru gott samfélag og hafa reynst okkur vel. Vandinn er að valdajafnvægið í sambandinu er afar ójafnt og það getur orðið háð stefnu og duttlungum Bandaríkjaforseta hverju sinni.
Um þessar mundir eru áhrifamikil öfl í Bandaríkjunum sem líta á allt samstarf út frá þröngu núllsummusjónarmiði: að gróði eins sé tap annars. Slíkt viðhorf gæti í versta falli gert Ísland að undirlendu voldugs ríkis.
ESB er alþjóðlegt
samstarf sem bundið
er sáttmálum…
Vonandi víkur þetta viðhorf fyrir öðrum sjónarmiðum í Bandaríkjunum. En þar komum við að kjarna málsins: gildi stjórnskipunarinnar. ESB er alþjóðlegt samstarf sem bundið er sáttmálum, skýrum lögum og skilgreindum réttindum aðildarríkjanna. Vald sameiginlegra stofnana og réttur hvers ríkis eru afmörkuð í lögum. Mjög ósamhverft samband við stórveldi er af allt öðrum toga.
Íslenskir ráðamenn geta ekki gengið að reglulegri áheyrn hjá Bandaríkjaforseta. Innan ESB hittast leiðtogar allra aðildarríkjanna reglulega. Þar á hvert ríki formlegt sæti við borðið og smáríki hafa neitunarvald í veigamiklum málum. Samskiptin eru því annars eðlis.
Ég óttast að gullið tækifæri kunni að vera að renna okkur úr greipum. En nú er að bíða og sjá hvað kemur upp úr kjörkössunum.
Það er kostur lýðræðisins: hver sem niðurstaðan verður, verður hún ákvörðun þjóðarinnar — til góðs eða ills. Hver sínum örlögum einn ræður.