Fréttir

Hverjir nota Hvalfjarðargöng?

By Miðjan

March 25, 2014

Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokks í Norvesturkjördæmi, vill fá að vita hversu margir bílar fara um Hvalfjarðargöng á ári og ekki bara það, hún vill einnig vita hvort vitað er hvar ökumenn þeirra bíla, sem fara um göngin, eiga heima. Og sé það vitað vill Elsa Lára vita hvernig skipting þeirra er eftir búsetusvæðum.

Fyrirspurninni er beint til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra.