Umræðan: Atli Þór Fanndal skrifaði:
„Þetta voru alveg þungir dagar í ráðhúsinu og ég finn að þessar aðgerðir hafa valdið svolitlum titringi líka í kerfinu og fólk spyr: Erum við næst?” Sko, ég veit að það hefur verið unnið að því linnulaust áratugum saman að láta eins og fólk skipti engu máli og það sé bara cool og ábyrg að tala svona en skortur borgarstjóra á empathíu er ekki gott veganesti. Það er þrátt fyrir allt verið að segja fólki upp. Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsókn skortir alla reisn. Það er hægt að gera hlutina án þess að haga sér eins og eitthvað humiliation költ. Til þess þarf maður samt samkennd. Þetta lið er Trumpian.“
Fyrirsögnin er Miðjunnar.