Fréttir

Hverju lofuðu þau fyrir kosningar?

By Miðjan

January 07, 2019

 Björgvin Guðmundsson skrifar: 

Stjórnarflokkarnir lofuðu allir kjósendum, einkum eldri borgurum og öryrkjum miklum kjarabótum. Það hefur allt verið svikið. Mest eru svikin hjá forystuflokki ríkisstjórnarinnar, „Róttæka sósíalistaflokknum“,sem ekki er lengur sósíalistaflokkur og ekki lengur róttækur.

Flokkurinn sagði í kosningunum 2017, að lífeyrir aldraðra yrði hækkaður. Hefur verið svikið. Ekki hefur verið hækkaður lífeyrir um eina krónu að frumkvæði forystu flokksins. Flokkurinn lofaði einnig að uppræta fátækt á Íslandi. Einnig svikið.

Framsókn sagði, að umtalsverð hækkun lægstu launa ætti að vera forgangsverkefni í kjarasamningagerð og að hækkun bóta ætti að fylgja slíkum hækkunum. Flokkurinn hefur ekki minnst á þessi mál frá því hann fór í ríkisstjórn, algjör svik.

Sjálfstæðisflokkurinn sagði, að tryggja ætti fjárhagslegt sjálfstæði ellilífeyris eldri borgara. Það hefur verið gert þveröfugt: Lægsta lífeyri haldið niðri við fátæktarmörk, við sultarmörk, langt undir viðmiði velferðarráðuneytis, í rúmlega 200 þús. á mánuði eftir skatt sem engin leið er að lifa af. Kosningaloforðin þverbrotin.