Greinar

Hvernig er minnið?

By Ritstjórn

October 26, 2020

Björn Birgisson skrifaði:Þegar allt hrundi haustið 2008 þá vissu sumir meira en aðrir um það sem í vændum var.Þá vitneskju máttu þeir ekki láta leka út og ekki gera vinum og flokkssystkinum viðvart um það sem í vændum var.Opinberlega fæddi þessi viðkvæma staða af sér einn innherja – mann sem misnotaði vitneskju sína.Sjálfan ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins, Baldur Guðlaugsson og hlaut hann tveggja ára fangelsisdóm.Ólafur Börkur Þorvaldsson, einn fulltrúa Sjalla í Hæstarétti vildi sýkna Baldur og kom það engum á óvart!Segja má að þarna hafi Baldri verið fórnað fyrir hönd allra hinna innherjanna – sem vitaskuld voru fjölmargir.**********Meðal þeirra sem sóru af sér innherjastimpilinn var Bjarni Benediktsson – sem þó tók ágætlega til í sínum fjármálum rétt áður en allt hrundi!Það gerði faðir hans, Benedikt Sveinsson, líka skömmu eftir að hinn dæmdi ráðuneytisstjóri seldi bréfin sín í Landsbankanum fyrir 192 milljónir króna.Benedikt komst upp með að koma um 500 milljónum úr Sjóði 9 hjá Glitni í skjól í Florida 11 dögum fyrir Guð blessi Ísland boðskap Geirs Haarde – en söluhagnaður Baldurs var gerður upptækur með dómi!Ólík örlög það!Er minnið ekki í góðu lagi?Kvittunin sem er birt hér að neðan var hluti af upplýsingalekanum sem varð úr þrotabúi Glitnis – lekanum sem þeim sem voru í feluleik tókst að fá sett lögbann á – það er lögbann á birtingu gagnanna.Því lögbanni var síðar aflétt með dómi.Jæja.

Ætli Baldur Guðlaugsson hafi nokkuð verið eini innherjasvikarinn í aðdraganda hrunsins?