- Advertisement -

HVERNIG VAR SPURT?

Birgir Dýrfjörð skrifar:

„Þegar smábátasjómenn voru að berjast fyrir tilverurétti sínum þá slæddist ég inn í þann hóp. 

Þá hugkvæmdist okkur að kanna viðhorf almennings til deilunnar. Besta leiðin til þess var skoðanakönnun, sem nyti trausts almennings.

Á þeim tíma gerði Háskólinn oft skoðanakannanir um álitamál í þjóðfélaginu það lá því beinast við að snúa sér þangað. Það gerðum við og hittum þar á mikinn speking sem hafði reynslu af framkvæmd skoðanakannana. (maðurinn var þó ekki Ólafur Harðarson).

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við fórum þrír að hitta manninn Arthúr form. trillukarla, Örn framkvæmdastjóri og ég. Við sögðum erindið, maðurinn tók því vel og sagði; og hvaða niðurstöðu viljið þið fá? Okkur varð svarafátt og horfðum bara hver á annan. Spekingurinn sagði þá: “Þið vitið það drengir að með réttum spurningum þá ráðið þið hvernig svörin verða”. Við vorum ekki tilbúnir með réttar spurningar sögðumst þurfa að hugsa málið. Það varð engin skoðanakönnun.

Þessi atburður rifjaðist upp þegar ég horfði á Silfrið í sjónvarpinu nú í kvöld (17.ág) þar var sýnd mynd af skounarkönnun sem gerð var fyrir atvinnurekendur.

Nú er spurt, Hverjir sömdu spurningarnar fyrir þessa skoðanakönnun?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: