Þingflokkur Vinstri grænna. Ljósmynd: RÚV.

Fréttir

Hvers konar tillaga er þetta eiginlega?

By Miðjan

June 04, 2019

Gunnar Smári skrifar:

Hvers konar tillaga er þetta eiginlega, nefskattur til að stemma stigu við hamfarahlýnun? Er það svo að allir menga jafnt? Láglaunafólkið sem á varla fyrir mat eftir að það hefur borgað húsaleiguna og ríkisbubbinn sem fer fjórtán sinnum til útlanda á ári, á sex bíla, tvo mótorhjól, eitt fjórhjól, vespu og þrjá snjósleða, 800 fermetra einbýlishús, 200 fermetra sumarbústað og hús á Flórída, átta aflandsfélög, sex eignarhaldsfélög og dregur upp feitan arð af rekstri fyrirtækja sem eru ábyrg fyrir góðum hluta af kolefnisfótsporum landsmanna? Hvílík blinda fyrir ójöfnuðu hjá þingmanni VG.