- Advertisement -

Hvers vegna ætlum við að taka upp samningaviðræður við ESB?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráherra skrifaði grein á dv.is. Þar er meðal annars þetta að finna:

„Við Íslendingar höfum sýnt og sannað að við erum fullkomlega fær um að klúðra okkar málum upp á eigin spýtur og oftar en ekki vegna þess að við tökumst ekki á við vandamálin fyrr en í óefni er komið. Við spillum landi og fjörðum af því við gerum engar áætlanir til framtíðar, við leyfum stórgróðamönnum að valsa um í efnahagslífinu og graðka til sín alla bestu bitana án þess að gerð sé krafa um sanngjarnt endurgjald eða samfélagslega ábyrgð, við vanrækjum mikilvæga innviði í stað þess að gera raunhæfar áætlanir um viðhald þeirra og svona mætti áfram telja. Og það er fullkomlega í samræmi við þessa skammtímahugsun að nú sé spurt: Hvers vegna ætlum við að taka upp samningaviðræður við ESB? Af hverju höldum við ekki áfram að una glöð við okkar og látum skeika að sköpuðu? Kannski reddast það en ég held að það sé löngu tímabært að við tökum ábyrga afstöðu til framtíðar barnanna okkar og tengjumst nágrönnum okkar traustari böndum.“

Hér má lesa greinina alla.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: