Mynd: Ron Dyar Unsplash.

Mannlíf

Hversu stór bunki er stór bunki?

By Miðjan

November 29, 2021

„Í bókun umboðsmanns J-lista í Reykjavíkurkjördæmi suður í gerðabók landskjörstjórnar 1. október 2021 kemur fram að við yfirferð utankjörfundaratkvæða á talningarstað hafi stór bunki þeirra verið metinn ógildur því á þau vantaði undirskrift kjörstjóra. Í áliti kjörbréfanefndar 2017 var lögð áhersla á að tryggja sem best að kjörstjórar sem aðstoða við utankjörfundaratkvæðagreiðsluna, einkum erlendis, hafi hlotið næga þjálfun til slíks.“

Hversu stór er bunkinn. Hversu mörg atkvæði kosninganna voru eyðilögð, og það kannski vísvitandi og viljandi?

Hvers vegna hefur enginn flokkur né nokkur alþingismaður hreyft við þessu dularfulla máli.

Svara þarf hversu stór er stór bunki, hvað voru mörg atkvæði eyðilögð og það sennilega viljandi. Hefði það geta breytt einhverju og þá hverju?