Umræðan/Facebook: Atli Þór Fanndal skrifaði:
„Það hefur verið merkilegt að sjá hvað ríkisstjórnin er á hraðri leið til óvinsælda. Sleggja Kristrúnar er meme og meira að segja Rúv er hömlulaust og án ótta í að bera hagkerfið saman við veikan mann með óreglulegan líkamshita. Frambjóðendur allra flokka boða innantóma gröfukarlaskilvirkni og metnaður fyrir betra lífi og meiri velferð er horfinn. Enginn býður okkur til tunglsins lengur en röðin til helvítis verður nú á rúllustiga. Allt er smættað niður í einfaldar lausnir. Vitið til að óvinsældir ríkisstjórnarinnar eiga eftir að aukast hratt núna. Hún er nefnilega löngu hætt að hlusta og þá fer fólk að öskra.“