Fréttir

Íbúðalánasjóður orðin að sjálfsafgreiðslukaupfélagi Framsóknarflokksins

Framsóknarmenn hafa. „...gengið þar um eins og menn í kaupfélagi og afgreitt sig sjálfir og keypt íbúðir af Íbúðalánasjóði undanfarin 10 ár fyrir 57 milljarða kr. Þessar íbúðir hefðu betur verið komnar í leigu fyrir fólk sem hefur lágar tekjur.“

By Miðjan

October 26, 2022

Er ekki rétt að endurvekja þessa frétt?

„Á þessum tíma, akkúrat á þessum tíma, væri gott að eiga öflugan Íbúðalánasjóð,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson á Alþingi.

„En Íbúðalánasjóður er nú orðinn að eins konar rannsóknarsetri og fyrir utan það þá er hann skurnin ein, vegna þess að einhver vildarklúbbur Framsóknarmanna hefur gengið þar um eins og menn í kaupfélagi og afgreitt sig sjálfir og keypt íbúðir af Íbúðalánasjóði undanfarin 10 ár fyrir 57 milljarða kr. Þessar íbúðir hefðu betur verið komnar í leigu fyrir fólk sem hefur lágar tekjur.“

Vildaklúbburinn

„Svo innvígður er þessi vildarklúbbur Framsóknarmanna að ekki er hægt að segja okkur þingmönnum hverjir skipa hann. Sá sem hér stendur lagði inn fyrirspurn í mars síðastliðnum um það hverjir það væru sem hefðu notið þessara kjara Íbúðalánasjóðs. Svar hefur ekki borist.“

Verð íbúa á Hafnartorgi.

Auðmenn á hjólum

„Þannig er með mál með vexti að hér í Reykjavík ríkir neyðarástand á húsnæðismarkaði vegna langtímalóðaskorts af manna völdum og borgaryfirvöld í Reykjavík hafa séð sig knúin til að styðja sérstaklega við stórgróðafyrirtæki sem reisa íbúðir fyrir auðmenn. Þannig er hægt að fá hér í úrvali í Reykjavík íbúðir sem kosta frá 100–250 milljónir. Ég hugsa að þær falli nú ekki vel að fyrstu kaupum. Þessar íbúðir eru staðsettar miðsvæðis í Reykjavík svo að þessum auðmönnum reynist betur að komast um í Reykjavík á reiðhjólum sínum.“

Íbúðir í skattaskjólum

„Auk þess er töluvert af íbúðum statt í skattaskjóli Airbnb, sem sá sem hér stendur hefur barist hatrammlega fyrir í fimm ár að böndum verði komið á og það hillir undir það. Allt þetta leiðir af sér hátt húsnæðisverð og hátt leiguverð.

Undirstaðan að því að hægt sé að kaupa hér fyrir láglaunafólk og millitekjufólk íbúðir í fyrsta sinn er lóðaframboð og auðvitað það sem er mergurinn málsins, að lækka hér okurvextina og koma verðtryggingunni af. Þá fáum við kannski vit í þetta mál.“