- Advertisement -

Icelandair ræðst gegn trúnaðarmanni og réttindum verkafólks

eflinng.is:

Icelandair ræðst gegn trúnaðarmanni og réttindum verkafólks

  • Trúnaðarmanni Eflingarfélaga á Reykjavíkurflugveli, Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, var sagt upp störfum í miðjum viðræðum um réttindamál vinnufélaga sinna.
  • Borin óútskýrðum sökum um „alvarlegan trúnaðarbrest í starfi“ á starfsmannafundi að henni fjarstaddri.
  • Ólöf nýtur trausts og virðingar vinnufélaga sinna, sem krefjast þess að uppsögn hennar verði dregin til baka.
  • Í annað sinn sem Icelandair brýtur á grundvallarréttindum starfsfólks á innan við ári.

Icelandair ehf. hefur rekið trúnaðarmann Eflingarfélaga á Reykjavíkurflugvelli, Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, úr vinnu á sama tíma og hún var í viðræðum við fyrirtækið um réttindamál starfsmanna. Ólöf hefur starfað í hlaðdeild á Reykjavíkurflugvelli síðan 2016 og gegnt hlutverki trúnaðarmanns óslitið síðan í mars 2018. Ólöf var jafnframt öryggistrúnaðarmaður.

Engin skýring á uppsögninni var veitt í uppsagnarbréfi. Eftir að Ólöfu var tilkynnt munnlega um uppsögnina voru vinnufélagar hennar boðaðir á fund þar sem yfirmenn sökuðu Ólöfu, að henni fjarstaddri, um „alvarlegan trúnaðarbrest í starfi“ sem ekki var skýrður nánar. Engar útskýringar komu fram í viðtali um ástæður uppsagnar á meintum trúnaðarbresti.

Ólöf nýtur trausts og stuðnings vinnufélaga sinna, sem hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu henni til stuðnings sem þeir sendu Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair. Þeir hafa hist reglulega til að bregðast við í málinu.

Samtök atvinnulífsins reka málið fyrir hönd Icelandair. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrum stjórnandi hjá Icelandair, hefur lýst stuðningi við uppsögn Ólafar.

Lögmaður og trúnaðarráð Eflingar hafa sent mótmæli til Icelandair og krafist þess að uppsögn Ólafar verði dregin til baka. Ólöf hefur lýst sig reiðubúna til að snúa aftur til starfa og láta málið niður falla verðir orðið við þeirri kröfu. Þessari kröfu hefur verið hafnað af bæði Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair og af Halldóri Benjamín Þorbergssyni fyrir hönd SA.

Yfirmenn Ólafar halda því fram að þeir hafi ekki haft vitneskju um stöðu Ólafar sem trúnaðarmaður. Sömu yfirmenn ávörpuðu hana þó sem trúnaðarmann í tölvupóstsamskiptum og titluðu hana sem slíka á innri vef fyrirtækisins. Þeir tilkynntu einnig sjálfir skipun hennar sem öryggistrúnaðarmaður til Vinnueftirlitsins.

Ólöf nýtur samkvæmt lögum uppsagnarverndar sem trúnaðarmaður og öryggistrúnaðarmaður. Auk þess er óheimilt að beita uppsögnum eða hótunum um þær til að refsa launafólki fyrir þátttöku í starfi stéttarfélaga.

Þetta er í annað sinn á innan við ári sem Icelandair brýtur á félagslegum réttindum starfsfólks með stuðningi Samtaka atvinnulífsins. SA og Icelandair voru aðilar að sérstakri yfirlýsingu ásamt ASÍ og Flugfreyjufélagi Íslands eftir að Icelandair hafði beitt uppsögnum sem vopni í kjaradeilu. Í yfirlýsingunni voru brot Icelandair hörmuð og lýst yfir vilja til að virða réttindi starfsfólks og góða samskiptahætti aðila vinnumarkaðarins.

Mál verður höfðað bæði fyrir Félagsdómi og Héraðsdómi vegna uppsagnar Ólafar, en jafnframt verður athygli almennings vakin á framöngu Icelandair og Samtaka atvinnulífsins í málinu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: