Fréttir

Inga undrandi á Miðflokknum

By Miðjan

June 10, 2026

Alþingi Inga Sæland skrifaði:

„Nú er verið að greiða atkv. um brottfararstöð á landamærunum. Það kom sannarlega á óvart að sjálfur Miðflokkurinn treystir sér ekki til að greiða atkv. með þessu nauðsynlega úrræði, sem gerir okkur kleyft að koma þeim af landi brott sem þegar hafa nýtt sér allt kerfi og kærunefndir og í einhv. tilvikum dómstóla og hafa fengið ótvíræða niðurstöðu um að eiga að yfirgefa landið.

Tek fram að nú eru hátt í 200 einstaklingar sem hafa týnst í kerfinu og enginn veit hvar eru staddir eftir að þeim hefur verið brottvísað.

Það er einnig athyglivert hvernig til eru þeir sem vilja frekar að börn séu skilin frá foreldri/um sínum og komið fyrir hjá vandalausum í boði barnaverndar á meðan beðið er eftir að geta flutt þau úr landi, heldur en að fjölskyldan fái að vera saman þá fáu daga sem ætlað er að hún þurfi að dvelja á brottfararstöð. Þessir aðilar segjast vinna að hagsæld og velferð barnanna.

Ég persónulega get aldrei skilið hvernig það ætti að vera betra fyrir barnið að aðskilja það frá foreldri/um sínum í stað þess að lofa fjölskyldunni að vera saman og óaðskilin á þessum tíma.

MIÐFLOKKUR SITUR HJÁ