Stjórnmál

Ingibjörg fer óhrædd gegn Bergþóri

By Miðjan

October 03, 2025

Ingibjörg Davíðsdóttir þingkona í Miðflokki hefur ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Miðflokksins. Bergþór Ólason, fráfarandi þingflokksins, hefur einnig gefið kost á sér. Muni ég rétt hefur Bergþór verið þingflokksformaður frá upphafi Miðflokksins.

Áður var Gunnar Bragi Sveinsson varaformaður flokksins. Þegar Vigdís Hauksdóttir afréð að bjóðða sig fram gegn Gunnar Braga, og gat verið nokkuð sigurviss, ákváðu Sigmundur Davíð og hans tryggasta stuðningfólk að ekki væri á það treystandi að Gunnar Bragi hefði betur í varaformannsslag gegn Vigdísi.

Þá voru góð ráð dýr. Herrarnir vildu Vigdísi ekki í forystu flokksins. Þá var ákveðið að leggja niður varaformennsku í Miðflokknum. Ótrúlegt er að sama verði nú. Það er að hætta við varaformannsstöðuna vegna ótta um að Ingibjörg hafi betur gegn Bergþóri.

„Styðja þarf við innra starf flokksins með samtali við grasrótina. Sveitastjórnakosningar eru í vor, verja þarf fullveldið, fólkið, frelsið, fyrirtækin og framtíð Íslands. Koma þarf á skynsamlegri stefnu í málefnum hælisleitenda. Okkur ber að tryggja landamærin og öryggi borgaranna, fæðuöryggi og innlenda matvælaframleiðslu og margt fleira,“ segir í framboðstilkynningu Ingibjargar.

Ingibjörg var oddviti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu þingkosningar. Hún starfaði áður í utanríkisþjónustunni, meðal annars sem sendiherra Íslands í Noregi. Þá var hún ráðgjafi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, þegar hann var forsætisráðherra.

Kosið verður um aðra helgi.

-sme