„…gerð var sérstök atlaga að því að leggja MA og fleiri menntaskóla niður með sameiningu við aðra framhaldsskóla.“
Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins, skrifaði:
„Það eru greinilega ekki öll sár gróin eftir nýleg átök um forystusætið í Framsóknarflokknum þar sem Ingibjörg Isaksen laut í lægra haldi fyrir fyrrverandi menntamálaráðherra Framsóknarflokksins Lilju Alfreðsdóttur.
Í grein í landshlutamiðlum vitnar hún í ræðu skólameistara MA þar sem hann gerði sérstaka grein fyrir því að málefni framhaldsskólans hefðu verið vanrækt um langt skeið og rifjar þá í leiðinni upp ábyrgð núverandi formanns Framsóknar á stöðu framhaldsskólanna en það situr eflaust í mörgum að gerð var sérstök atlaga að því að leggja MA og fleiri menntaskóla niður með sameiningu við aðra framhaldsskóla.
Tölurnar í samhengi
Ríkisstjórnin hefur ekki verið að skera niður fjárframlög til framhaldsskóla á hvern nemenda heldur verða þau óbreytt á föstu verðlagi frá árinu í ár og til loka fjármálaáætlunar árið 2031. Það sem skýrir lækkuð heildar fjárframlög eru minni árgangar en eftir árin 2009 og 2010 tók fæðingartíðini að lækka jafnt og þétt.
Það er nú verið að bæta verulega í framkvæmdir við uppbyggingu aðstöðu til verknáms á næstu árum og þegar líður á fjármálaáætlunina fer að draga úr framkvæmdum.
Uppbyggingin er í samræmi við áherslu stjórnvalda um að efla verknám, en ef það tekst þá gæti þurft að endurskoða fjárframlög á hvern nemenda þar sem kostnaður á hvern nemenda er venjulega öllu hærri í verknámi en í bóknámi.
Best væri að fá hærra hlutfall ungmenna í framhaldsskóla og minnka brottfall en þó svo það myndi eitthvað raska núgildandi áætlunum þá væri það fljótt að borga sig upp fyrir Ísland framtíðarinnar.“