Umræðan: Katrín Oddsdóttir skrifaði:
- Refsilaust að halda minka við slíkar aðstæður að þeir eru farnir að éta sjálfa sig af vanlíðan.
- Refsilaust að nota og berja blóðmerar.
- Refsilaust að klippa hala af grísum (svo þeir éti þá ekki af vanlíðan).
- Refsilaust að veiða langreyðar með aðferðum sem þýða að þær þjást óhóflega.
- Refsilaust að halda sundurtætta lúsétna laxa sem syndandi í hringi innan um dauða fiska í kvíum.
Samt segja lögin annað.
Dýraverndunarsamtök eru ekki talin eiga “aðild” að kærumálum að mati ríkisins svo enginn getur varið hagsmuni þessara dýra.
Þetta er einfaldlega staðan hér elsku vinir.
Ættum við, sem siðferðisverur með samkennd, að krefjast breytinga á þessu?