Greinar

Ísland þarfnast þess að fleiri flytji hingað

By Miðjan

August 09, 2025

Atli Þór Fanndal setti þetta á blað:

„Vitið til að þegar þessari keppni í vonleysi og skort þar sem fólk sem kemur hingað að vinna og læra, er gert að blórabögglum verður lokið, þá mun samt ekkert batna í húsnæðismálum, á vinnumarkaði, heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu né innviðum.

Þá verða táfýlukarlarnir í Sjálfstæðisflokknum (sem kalla sig líka Miðflokksmenn) enn jafn óhamingjusamir, hræddir og leiðinlegir. Þótt dómsmálaráðherra telji þetta dekur sitt við orðræðu gremjustjórnmála alveg gasalega mikla strategíu þá mun innflytjendum ekki fækka og rasistarnir verða ekkert glaðari.

Það er alveg hægt að tala um innflytjendakerfið án þess að tala eins og fólk sem hingað kemur sé eitthvað stjórnlaust flóð sem misnoti veikt kerfi.

Ísland þarf einfaldlega meira fólk, betri innviði og fjárfestingu í fólki. Þessu hefur ekkert verið sinnt og þess vegna eru mál í steik. Og þegar þessu bulli er lokið af hálfu ráðherra og ekkert breytist vegna þess að innflutningur á starfsfólki á Íslandi er vegna stefnuleysis í atvinnumálum þá er spurning hvaða hópi verður kennt um allt næst. Það er vel hægt að ræða þessi mál og bæta kerfið en vandinn er ekki og hefur aldrei verið að við komum ekki nægilega illa fram við útlendinga.“