Greinar

„Íslenskir neytendur eru stórkostlegir“

By Miðjan

August 14, 2025

„Íslenskir neytendur eru stórkostlegir. Þrælslundin er ótrúleg. Við borgum ofurvextina okkar með bros á vör, greiðum húsnæðið okkar aftur og aftur og aftur og tryggjum eigendum bankanna milljarða arðgreiðslur. Við mótmælum því ekki. Tryllumst ekki og tökum yfir internetið vegna þess. Ó nei.

En hinsvegar sýnum við hvað í okkur býr, tryllumst við og tökum fríkið út af… bílastæðum og bílastæðagjöldum.

Við erum ekki í lagi,“ skrifaði Felix Bergsson.