- Advertisement -

Íslenskir útgerðarmenn eru í ESB

Úlfar Hauksson skrifaði:

Útgerðarmenn elska myrkrið og vilja eignast Ísland allt eins og leggur sig. Það er mergur málsins. Útgerðin segir: ESB og evru fyrir okkur. EES og krónu fyrir ykkur… og svo skellihlægja þeir.

„Ég minni alla tilheyrendur og sjáendur á að mæta á kjörstað og kjósa JÁ þann 29. ágúst. Næstu daga fram að kosningu verður öskrað á ykkur og fabúlerað um hætturnar sem leynast við það eitt að fara í aðildarviðræður. En um það verður kosið. AÐILDARVIÐRÆÐUR. Orgið mun berast hátt úr barka útgerðarmanna.

Bendi á að íslenskir útgerðarmenn eru fyrir löngu gengnir í ESB og hía bara á almenning. Útvegsmenn gera allt sitt upp í evrum og fjármagna allt í evrum og eiga meira og minna öll viðskipti í stöðugu evruumhverfi. Kaupa vörur – veiðarfæri, vélbúnað og margt fleira innanlands, já innanlands innan krónuhagkerfisins, í evrum!

Eina sem eftir er í krónuhagkerfinu eru laun starfsfólks á Íslandi og kostur sem keyptur er í Bónus og í Krónunni. Allt annað er í evrum. Íslenskir útvegsmenn reka fiskvinnslur í mörgum ríkjum ESB og koma að útgerð í mörgum ríkjum ESB og vegnar vel í því umhverfi. Íslenskir útvegsmenn elska ESB…. fyrir sig!

Þú gætir haft áhuga á þessum

Látum ekki hræða okkur.

Íslenskir útvegsmenn stunda kvótahopp úr fiskiskipum ESB í fiskvinnslur hér á landi. Íslenskir útvegsmenn reka víðtækt sölu- og markaðsnet í löndum ESB. Útgerðarmenn eru á fullu í ESB og þeim gengur vel og líður vel innan ESB og þannig mun það verða áfram. Útgerðarmenn óttast ekki ESB út frá hagsmunum sjávarútvegs per se. Þeir óttast að með aðild komi meira gagnsæi í þeirra virðiskeðju.

Með öðrum orðum … að varpað verði ljósi á og komið í veg fyrir vinnubrögð sem þola illa dagsljósið í virðiskeðju þeirra. Útgerðarmenn elska myrkrið og vilja eignast Ísland allt eins og leggur sig. Það er mergur málsins. Útgerðin segir: ESB og evru fyrir okkur. EES og krónu fyrir ykkur… og svo skellihlægja þeir.

Ef nei verður niðurstaðan þann 29. ágúst verður skálað í höfustöðvum SFS með húrra hrópum og köllum…“okkur tókst það….aftur“!

Látum ekki hræða okkur. Kjósum JÁ við aðildarviðræðum þann 29. ágúst. Upp með luktirnar og lýsum upp skúmaskotin… JÁGÚST.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: