Greinar

Jafnaðarmenn vilja að auðlindir séu þjóðareign og nýttar öllum í hag

By Aðsendar greinar

February 11, 2026

Birgir Dýrfjörð skrifaði og sendi eftirfarandi:

TIL FRÓÐLEIKS

Landsfélagið Rósin er sjálfstætt stjórmálafélag um jafnaðarstefnu stofnað 1986.

Strax í upphafi var samin og birt stefnulýsing undir yfirskriftinni „Markmið og leiðir“ Hér kemur kaflinn um markmið Rósarinnar.

STEFNULÝSING. (Manifesto)

Sígild jafnaðarstefna.

Markmið og leiðir

Markmið

Jafnaðarmenn boða jafnrétti. Allar manneskjur eiga tilkall til mannlegrar reisnar og mannhelgi óháð kyni, kynþætti, trúarbrögðum, kynhneigð, ætterni, eða félagslegri stöðu.

Jafnaðarmenn hafna að kynbundinn munur sé á greind og siðferðisvitund kvenna og karla.

Jafnaðarmenn krefjast að bæði kyn hafi sama rétt á öllum sviðum samfélagsins.

Frelsi.

Jafnaðarmenn verja lýðræði og frelsi einstaklinga og hópa sem helgan rétt fólks til að tjá sig og ákvarða um eigin mál.

Jafnaðarmenn vilja að einstaklingar geti notið ávaxta af eigin framtakssemi og dugnaði og hafi fullt frelsi til hvers sem er, skaði það eigi aðra.

Samkennd.

Jafnaðarmenn vilja að samfélagið tryggi að allir geti lifað með reisn og notið hæfileika sinna.

Jafnaðarmenn fordæma mannréttindabrot kúgun og ofbeldi og leggja þeim ævinlega lið, sem fyrir slíku verða.

Jafnaðarmenn nota samneyslu til að jafna lífskjör og tryggja öllum tækifæri að þroska og njóta hæfileika sinna og getu.

Réttlæti.

Jafnaðarmenn vilja réttlæti og þola aldrei rangindi. Jafnaðarmenn vilja að lög og leikreglur séu almennar og gegnsæjar og umboði og meðferð á almannavaldi fylgi ávalt ábyrgð.

Umhverfisvernd.

Jafnaðarmenn vilja að auðlindir séu þjóðareign og nýttar öllum í hag.

Jafnaðarmenn vilja nýta auðlindir á sjálfbæran hátt og virðingu fyrir náttúru og lífríki lands og sjávar og virðingu fyrir rétti komandi kynslóða.

Alþjóðasamvinna er sígild jafnaðarstefna.

Jafnaðarmenn vilja taka virkan þátt í að móta og virða alþjóðalög.