Ekki er lengur hægt að segja að Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður í Norðausturkjördæmi, sé týndur. Hann er fundinn. Sjálfur skrifar hann:
„Morgunblaðið auglýsti eftir mér á dögunum með skemmtilegri gervigreindarmynd þar sem ég er í Adidas galla (sem kom mörgum vinum mínum, sem áttuðu sig ekki á myndabrellu Moggans, að ég ætti í mínum fataskáp). En svona er Ísland í dag – ef það er ekki á samfélagsmiðlum þá gerðist það ekki
En undanfarnar vikur hef ég þó ekki setið auðum höndum og farið víða um Norðausturkjördæmi og hitt trúnarmenn flokksins, sveitarstjórnarfólk og farið í heimsóknir í fyrirtækjum.
Og núna um helgina fékk ég einstakan túr með Sigurjóni Andréssyni bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Fórum víða um sveitarfélagið og fengum kynningu á alveg magnaðri uppbyggingu í ferðaþjónustu á svæðinu – milljarða framkvæmdir sem búið er að fara í, og stórhuga og metnaðarfull verkefni sem standa fyrir dyrum eins og uppbygging Bláa Lónsins á Hoffelli. Það er stórhugur í sunnlendingum og verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu og verðmætasköpun á svæðinu.
Það var líka einstakt að fá að kíkja á vinnustofu listamannsins og leikstjórans Hlyns Pálmasonar.“