Glæsileg hjónin á góðri stundu.

Fréttir

Jói Berg gekk í það heilaga með Hófý sinni á Spáni – SJÁIÐ MYNDIRNAR!

By Ritstjórn

June 18, 2022

Fótboltakappinn snjalli Jóhann Berg Guðmundsson og lögfræðingurinn Hólmfríður Björnsdóttir gengu í það í heilaga á Spáni við fallega, skemmtilega og hátíðlega athöfn; var mál gesta að mikil stemmning hafi verið á þessum gleðilega degi.

Fallegur dagur – gott veður og hamingja í öllum hornum.

Jóhann Berg bar upp bónorðið árið 2018, og að sjálfsögðu var svarið já.

Hjónin fallegu eiga tvö börn saman og fjölskyldan hreinlega geislar af gleði þessi dægrin.

Hólm­fríður er lög­fræðing­ur, en hún er alltaf kölluð Hófý; hún æfði sam­kvæm­is­dansa og er marg­fald­ur Ís­lands- og Norður­landa­meist­ari í lat­in og ball­room.

Engu var til sparað til að gera veisluna sem glæsilegasta. Eins og sést.

Ekki nóg með það, heldur var hun aðeins átján ára gömul ára göm­ul þegar hún ákvað að taka einka­flug­mann­inn sam­hliða námi við Versl­ó – en flutt­ist síðan til Dan­merk­ur, sérstaklega til að huga að dansinum; bjó þar í rúm tvö ár.

Gleðin var mikil og minningarnar ómetanlegar.

Eftir heimkomuna til Íslands hóf Hófý nám í lögfræði við Há­skóla Íslands, en á sumr­in starfaði hún sem flug­freyja hjá Icelanda­ir; skemmti einnig um allt land sem Solla Stirða úr þáttunum Latabæ.

Stuð, stuð, stuð.

Í dag spilar Jóhann Berg fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni, og á líka stórkostlegan feril að baki sem landsliðsmaður – sem vonandi sér ekki strax fyrir endann á.

Flottir fellar í enn flottari fíling.

Miðjan sendir þessari fallegu fjölskyldu sínar bestu kveðjur – til hamingju!