Stjórnmál

Jón Gunnars kallaði Ragnar Þór fyrirbæri

By Miðjan

February 18, 2026

Jón Gunnars kallaði Ragnar Þór fyrirbæri

„En það eru bara allir asnar og vitleysingar og hagsmunagæsluaðilar fyrir einhverja ríka í landinu að mati hæstvirts félags- og húsnæðismálaráðherra. Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing? Jú, úr verkalýðshreyfingunni. Hann kom úr verkalýðshreyfingu og hann talar með þessum hætti til fólks í stærstu stjórnmálaflokkum landsins. Þetta er auðvitað algerlega óboðlegt og forseti á náttúrulega að ávíta ráðherra og þingmenn sem tala með þessum hætti til annarra hér í salnum,“ sagði Jón.

Hrokinn hjá Jóni virðist óendanlegur. Jón sagði: „Hann kom úr verkalýðshreyfingu og hann talar með þessum hætti til fólks í stærstu stjórnmálaflokkum landsins.“

Stærstu stjórnmálaflokka landsins sagði Jón. „Ja fussumsvei, ja fussumsvei,“ söng Soffía frænka hástöfum. Þær skammir eiga við framgöngu Jóns Gunnarssonar. Heldur sig eiga njóta euka réttinda fyrir að vera í flokki sem eitt sinn var stór, en er ekki lengur. Bara alls ekki.

Uppfært: Jón Gunnarsson barst, við upphaf þingfundar nú rétt áðan, baðst hann afsökunar á orðum sínum um Ragnar Þór Ingólfsson.