- Advertisement -

Kælum okkur

Sigríður Á. Andersen skrifaði í Moggann:

Sigriður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og Jean-Luc Mélanchon.

„Ég sótti þing Evrópuráðsins í síðustu viku. Þinghúsið var nánast eini öruggi staðurinn í borginni í hitabylgjunni sem skall á af fullum þunga þessa vikuna. Loftkælingin fékk að njóta sín þar ólíkt flestum heimilum Frakklands. Meginland Evrópu hefur þráast við að taka í þjónustu sína þau sjálfsögðu þægindi sem Bandaríkjamenn tóku í þjónustu sína fyrir tæpri öld. Með hlýnandi loftslagi en um leið ódýrari tækni heyrir til undantekninga að heimili og vinnustaðir í Bandaríkjunum séu ekki loftkæld ef á þarf að halda, jafnvel í nyrstu ríkjum. Í Evrópu er hins vegar ennþá verið að ræða málið.

Hitabylgjur ríða reglulega yfir meginlandið. Þær hafa verið jafn fyrirsjáanlegar og sólsetrið en hafa vissulega verið að fikra sig norðar í álfunni. Alltaf virðist Evrópa þó jafn óviðbúin hitanum. Litlar rafmagnsviftur seljast upp á einum degi. Slökkviliðið er ræst út til að sprauta vatni á mannskapinn sem hefst ekki við innandyra. Fyrirtækjum er lokað. Allt eru þetta viðbrögð sem væru skiljanleg á Íslandi, ef við vöknuðum við 40 stiga hita í nokkra daga. En í stóru löndunum á meginlandinu er þetta fát merki um skort á framsýni og framtaksleysi. Eiginlega vanþróun.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Leiðtogi villta vinstrisins í Frakklandi, Jean-Luc Mélanchon, lét hafa eftir sér í vikunni að hann myndi aldrei koma börnum sínum fyrir í húsnæði sem væri loftkælt frá morgni til kvölds. Hann vill alls ekki fara í átak til þess að gera loftkælingu almenna í Frakklandi. Það væri einungis til þess að gera illt verra. Þessi forsetaframbjóðandi vinstri manna telur nefnilega rétt að berjast gegn hnattrænni hlýnun með því að draga úr orkunotkun en ekki auka hana. Skiptir þá engu þótt líf fólks kunni að vera í húfi. Frá sjónarhóli manna eins Mélanchon er ávinningur eins aldrei öðruvísi en á kostnað annars. Loftkæling fyrir suma leiði þannig til vandamála fyrir aðra. Auðvitað er það ekki svo.

Við hér á Íslandi fórum í stóru orkuskiptin fyrir meira en hálfri öld og stöndum öðrum þjóðum langtum framar í orkumálum. Það er ekki bara náttúrunni að þakka. Þörfin fyrir ódýra og almenna orkukosti ásamt hugvitinu leiddi jarðvarma og orku fallvatna inn á flest heimili og vinnustaði. Þetta hefur ekki bara gert búsetu á Íslandi þægilegri, ef ekki beinlínis verið forsenda hennar, heldur einnig opnað tækifæri til sköpunar á öðrum sviðum og leitt til almennrar hagsældar.

Ólíkt hafast þau við, nágrannar okkar í Bandaríkjunum og Evrópu. Íslendingar hafa borið gæfu til að tileinka sér hugarfarið að vestan í þessum efnum. Í Evrópu liggja menn hins vegar rænulausir í hitakófi og láta dvínandi samkeppnishæfni ekki hafa önnur áhrif en til skýrslugerða. Og með fyrirhugaðri stækkun ESB stækkar áhrifasvæði Mélanchon og félaga. Því miður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: